Monday, May 2, 2011

2. maí

Í dag er settur dagur en ég og Hjörtur eigum fullkomna, næstum því, 5 vikna stúlku. Í tilefni dagsins, tók ég, Áslaug, mig til og koma þessari bloggsíðu í gang. Ætli mesti seinagangurinn stafi ekki af því að ég hafði ekki hugmynd hvað ég ætti að skíra þetta blogg. Ég fékk bara þá snilldar hugmynd í dag að skíra bloggið "Álfaeyra" en Karítas Björk er einmitt með álfaeyra, þó bara eitt. Elsku dúllan!

Já, þetta er fyrsta færslan á þessu bloggi. Næsta færsla, sem kemur bara á eftir, verður eflaust margir kílómetrar en ég þarf að fara yfir síðustu vikur - Jibbí!

2 comments:

Rakel said...

sæta álfaeyra:):) Hlakka til að sjá og heyra meira frá ykkur! knús

inga said...

Mikið er ég glöð að það sé komin síða fyrir snúlluna :) Hlakka svo til að sjá ykkur í sumar, finnst of skrítið að þú eigir litla stelpu sem ég hef aldrei séð!!