Thursday, June 9, 2011

BOLLA

Þá var hjúkkan okkar, hún Louise, að mæla og vigta frú Karítas Björk. Haldiði ekki að dúllutetrið sé orðin 57 cm. og 5.150 kg! Hún ætlar að vera fljót að vaxa og verða stór einsog pabbi sinn...Louise sagði það allavega, hehe.

Hún er yfir kúrfu skilst mér í stærð og þyngd miðað við að vera fædd 5 vikum fyrir tímann - DUGLEGUST!



XOXO

Wednesday, June 8, 2011

MYNDIR

Víjjj, nýjar myndir eru komnar á myndasíðuna okkar - Bæði í Maí&Júní albúmin!

Klikkið HÉR

Ef þú ert ekki með pw. inná myndasíðuna, þá hefur þú bara samband, er það ekki!

Nú annars væri líka gaman ef fólk myndi kommenta og kvitta fyrir komu sína - Annars ullar Karítas á ykkur...


Hér í DK er allt gott að frétta. Ótrúlega gott veður og Karítas var mjög léttklædd um helgina. Núna er stúlkan farin að vaka meira, brosa og aðeins að læra á hjalið. Hún stækkar gífurlega hratt og við fáum einmitt að vita þyngd henna á morgun þegar hjúkkan kemur heim. Það verður líka gaman að sjá hversu löng hún verður, miðað við mælinguna hjá hjúkkunni, EN ég mældi hana í fyrradag og fékk út 55cm. Spennandiii!

Í dag eru akkúrat ÞRJÁR vikur í ÍSLAND. Við erum mjög spennt að koma heim og knúsa alla, jibbí. En þangað til ætlum við að njóta þess að vera í DK í aaaðeins meiri hita og sól en hefur látið sjá sig á Íslandi.

Við fengum Sibbu, Bergey og krakkaormanna þeirra í heimsókn um daginn og fékk Karítas fallegt leikteppi. Það verður stuð á henni þegar hún hefur vit fyrir því, hehe.

Jæja, þangað til næst!

Tuesday, May 31, 2011

Sleeping beauty

Mömmunni finnst fátt skemmtilegra en að taka myndir af barninu sínu sofandi. Ohhh, mér finnst hún bara svo mikil rúsína þá..Eða, auðvitað alltaf, en sérstaklega sofandi með BOLLUKINNAR & UNDIRHÖKU!

Dagurinn í dag er bleikur, fjólublár, hvítur og ogguponsu grænn...


Það er einsgott að nota alla þessa fínu smekki sem ömmur hafa heklað handa Karítas...Jú, svo er Karítas með bakflæði og gubbar í tíma og ótíma svo það er einsgott að hlífa fötunum!



Barnið okkar verður 9 vikna á morgun, vúhúúúú - Og varð 2. mánaða í gær - AMMMMILIIIII




Friday, May 27, 2011

TGIF

Mamman að skemmta sér með I-phone-inum sínum...


Það þýðir ekkert annað en að dressa sig upp fyrir föstudaga..
.Gott að fá sér líka beautysleep í fínum kjól!


Sætust í bænum, það er bara þannig!

GÓÐA HELGI KÆRU VINIR

Monday, May 23, 2011

Myndir



Nýjar maí-myndir komnar á myndasíðuna okkar.
 Klikkið á linkinn hér í stikunni til hægri til að skoða. 

Þið sem hafið ekki lykilorð, endilega hafið samband við mig eða Hjört á facebook (message) eða sendið e-mail á: slauga2@gmail.com



Sunday, May 22, 2011

Undirhaka

Góðan og blessaðan sunnudag. Nú er eldgos hafið í Grímsvötnum og Karítas Björk komin með hina fínustu undirhöku!

Í augnablikinu er algjör kósýdagur á heimilinu, enda rigning, þrumur og eldingar. Foreldrarnir horfa á kvikmyndir og Karítas kúrir í vöggunni sinni, alveg búin á því...Svona einsog flesta daga, hoho.

Já, prinsessan á heimilinu hefur það rosalega gott og heldur í sína rútínu frá fæðingu: Sofa, drekka, kúka&pissa og spjalla við foreldra sína á milli. í dag ætti Karítas að vera 3 vikna en er í staðin að verða 8 vikna, JÁ, 8 vikna! Þar sem að hún kom svona fljótt í heiminn, þá er hún auðvitað smá á eftir sínum jafnöldrum en það er nú ekkert til að pæla í og verður hún orðin alveg einsog hinir innan skamms. Best að sofa bara og stækka vel á meðan!

Við mæðgur fórum í danskan mömmuhóp síðasta mánudag og hittum þar hjúkkuna okkar og var Karítas mæld og vigtuð. FJÖGUR kíló var staðreyndin og 52cm. Hún á eftir að fá sinn vaxtarkipp og þá bara hlýtur hún að lengjast vel ef hún ætlar að líkjast föður sínum. En nóg þyngist daman enda er rjóminn hjá mömmunni bestur. Reyndar eru mælingarnar ekkert sérstaklega nákvæmar en börnin eru ekki látin liggja upp að vegg, svo að oft færist málbandið og þannig. Ég t.d. mældi Karítas daginn eftir eins vel og ég gat og fékk út 53.5 cm.

Nú svo fórum við í íslenska mömmuhópinn á fimmtudaginn og hittum STÓRU börnin (4-9 mán). Jahér, ég trúi bara ekki að stelpan mín eigi eftir að vera svona stór í sumar. Ég áttaði mig á því að þegar við komum heim í endan ágúst eftir Íslandsdvöl, þá verður Karítas 5 mánaða. Það er náttúrulega bara undarlegt!

Við fjölskyldan ætlum að koma þann 29. júní og vera í 7+ vikur. Okkur hlakkar mikið til að koma og monta okkur af stóru stelpunni okkar og eiga góðar stundir með vinum og vandamönnum. Mmm, já!

Jæja, ég ætla að henda inn einhverjum myndum á eftir inn á myndasíðuna okkar. Svo þarf ég að klára að laga síðuna!

Þangað til næst,

Áslaug, Hjörtur og Karítas Björk

Monday, May 2, 2011

2. maí

Í dag er settur dagur en ég og Hjörtur eigum fullkomna, næstum því, 5 vikna stúlku. Í tilefni dagsins, tók ég, Áslaug, mig til og koma þessari bloggsíðu í gang. Ætli mesti seinagangurinn stafi ekki af því að ég hafði ekki hugmynd hvað ég ætti að skíra þetta blogg. Ég fékk bara þá snilldar hugmynd í dag að skíra bloggið "Álfaeyra" en Karítas Björk er einmitt með álfaeyra, þó bara eitt. Elsku dúllan!

Já, þetta er fyrsta færslan á þessu bloggi. Næsta færsla, sem kemur bara á eftir, verður eflaust margir kílómetrar en ég þarf að fara yfir síðustu vikur - Jibbí!