Thursday, June 9, 2011

BOLLA

Þá var hjúkkan okkar, hún Louise, að mæla og vigta frú Karítas Björk. Haldiði ekki að dúllutetrið sé orðin 57 cm. og 5.150 kg! Hún ætlar að vera fljót að vaxa og verða stór einsog pabbi sinn...Louise sagði það allavega, hehe.

Hún er yfir kúrfu skilst mér í stærð og þyngd miðað við að vera fædd 5 vikum fyrir tímann - DUGLEGUST!



XOXO

Wednesday, June 8, 2011

MYNDIR

Víjjj, nýjar myndir eru komnar á myndasíðuna okkar - Bæði í Maí&Júní albúmin!

Klikkið HÉR

Ef þú ert ekki með pw. inná myndasíðuna, þá hefur þú bara samband, er það ekki!

Nú annars væri líka gaman ef fólk myndi kommenta og kvitta fyrir komu sína - Annars ullar Karítas á ykkur...


Hér í DK er allt gott að frétta. Ótrúlega gott veður og Karítas var mjög léttklædd um helgina. Núna er stúlkan farin að vaka meira, brosa og aðeins að læra á hjalið. Hún stækkar gífurlega hratt og við fáum einmitt að vita þyngd henna á morgun þegar hjúkkan kemur heim. Það verður líka gaman að sjá hversu löng hún verður, miðað við mælinguna hjá hjúkkunni, EN ég mældi hana í fyrradag og fékk út 55cm. Spennandiii!

Í dag eru akkúrat ÞRJÁR vikur í ÍSLAND. Við erum mjög spennt að koma heim og knúsa alla, jibbí. En þangað til ætlum við að njóta þess að vera í DK í aaaðeins meiri hita og sól en hefur látið sjá sig á Íslandi.

Við fengum Sibbu, Bergey og krakkaormanna þeirra í heimsókn um daginn og fékk Karítas fallegt leikteppi. Það verður stuð á henni þegar hún hefur vit fyrir því, hehe.

Jæja, þangað til næst!