Sunday, May 22, 2011

Undirhaka

Góðan og blessaðan sunnudag. Nú er eldgos hafið í Grímsvötnum og Karítas Björk komin með hina fínustu undirhöku!

Í augnablikinu er algjör kósýdagur á heimilinu, enda rigning, þrumur og eldingar. Foreldrarnir horfa á kvikmyndir og Karítas kúrir í vöggunni sinni, alveg búin á því...Svona einsog flesta daga, hoho.

Já, prinsessan á heimilinu hefur það rosalega gott og heldur í sína rútínu frá fæðingu: Sofa, drekka, kúka&pissa og spjalla við foreldra sína á milli. í dag ætti Karítas að vera 3 vikna en er í staðin að verða 8 vikna, JÁ, 8 vikna! Þar sem að hún kom svona fljótt í heiminn, þá er hún auðvitað smá á eftir sínum jafnöldrum en það er nú ekkert til að pæla í og verður hún orðin alveg einsog hinir innan skamms. Best að sofa bara og stækka vel á meðan!

Við mæðgur fórum í danskan mömmuhóp síðasta mánudag og hittum þar hjúkkuna okkar og var Karítas mæld og vigtuð. FJÖGUR kíló var staðreyndin og 52cm. Hún á eftir að fá sinn vaxtarkipp og þá bara hlýtur hún að lengjast vel ef hún ætlar að líkjast föður sínum. En nóg þyngist daman enda er rjóminn hjá mömmunni bestur. Reyndar eru mælingarnar ekkert sérstaklega nákvæmar en börnin eru ekki látin liggja upp að vegg, svo að oft færist málbandið og þannig. Ég t.d. mældi Karítas daginn eftir eins vel og ég gat og fékk út 53.5 cm.

Nú svo fórum við í íslenska mömmuhópinn á fimmtudaginn og hittum STÓRU börnin (4-9 mán). Jahér, ég trúi bara ekki að stelpan mín eigi eftir að vera svona stór í sumar. Ég áttaði mig á því að þegar við komum heim í endan ágúst eftir Íslandsdvöl, þá verður Karítas 5 mánaða. Það er náttúrulega bara undarlegt!

Við fjölskyldan ætlum að koma þann 29. júní og vera í 7+ vikur. Okkur hlakkar mikið til að koma og monta okkur af stóru stelpunni okkar og eiga góðar stundir með vinum og vandamönnum. Mmm, já!

Jæja, ég ætla að henda inn einhverjum myndum á eftir inn á myndasíðuna okkar. Svo þarf ég að klára að laga síðuna!

Þangað til næst,

Áslaug, Hjörtur og Karítas Björk

1 comment:

Agla said...

Jejj gaman að fá bloggsíðu! Hlakka svo til fyrir ykkar hönd að komast til Íslands í sumar.. verður algjört æði.

Ég verð reglulegur gestur hér :)