Karítas Björk fæddist þann 30.03.2011, klukkan 00:53 á Regionhospitalet í Randers.
Pabbi hennar, Hjörtur, var viðstaddur fæðinguna. Amma Kolla beið spennt heima í Horsens.
Karítas var 2480 gr, eða um 10 merkur, og 48 cm.
Hárlitur hennar var dökkbrúnn og augun svört, en nú eru þau orðin dökkblá og verða síðar eflaust græn í stíl við mömmuna og pabbann.
Frá því að mamman var sett af stað, tók fæðingarferlið ekki nema 14 klst.
Við, litla fjölskyldan, vorum á spítalanum í Randers í 2 daga, en fluttum okkur á spítalann í Horsens og dvöldum þar í 5 daga.
SKÍRNIN:
Við ákváðum að nefna dóttur okkar þegar hún var 3 vikna gömul, en við (mamman) hreinlega gátum ekki beðið með að segja öllum fallega nafnið hennar, KARÍTAS BJÖRK, þangað til að við færum heim til Íslands um sumarið.
Formleg skírn verður þó haldin þann 10. júlí.
Nafnið Karítas er "út í bláinn" og þýðir kærleikur.
Nafnið Björk er í höfuðið á ömmu Erlu Björk, mömmu pabbans. Björk þýðir birki.
HELSTU VIÐBURÐIR ÁRSINS:
Fyrsta brosið kom um 5 vikna.
Fyrsta hjalið kom um 9 vikna.
HÆÐ & ÞYNGD:
Við fæðingu: 2480 gr. 48 cm.
2 vikna: 2600 gr & 49.5 cm.
4 vikna: 3100 gr & 51 cm.
7 vikna: 4010 gr & 53 cm.
10 vikna: 5.150 gr. & 57 cm.