Wednesday, June 8, 2011

MYNDIR

Víjjj, nýjar myndir eru komnar á myndasíðuna okkar - Bæði í Maí&Júní albúmin!

Klikkið HÉR

Ef þú ert ekki með pw. inná myndasíðuna, þá hefur þú bara samband, er það ekki!

Nú annars væri líka gaman ef fólk myndi kommenta og kvitta fyrir komu sína - Annars ullar Karítas á ykkur...


Hér í DK er allt gott að frétta. Ótrúlega gott veður og Karítas var mjög léttklædd um helgina. Núna er stúlkan farin að vaka meira, brosa og aðeins að læra á hjalið. Hún stækkar gífurlega hratt og við fáum einmitt að vita þyngd henna á morgun þegar hjúkkan kemur heim. Það verður líka gaman að sjá hversu löng hún verður, miðað við mælinguna hjá hjúkkunni, EN ég mældi hana í fyrradag og fékk út 55cm. Spennandiii!

Í dag eru akkúrat ÞRJÁR vikur í ÍSLAND. Við erum mjög spennt að koma heim og knúsa alla, jibbí. En þangað til ætlum við að njóta þess að vera í DK í aaaðeins meiri hita og sól en hefur látið sjá sig á Íslandi.

Við fengum Sibbu, Bergey og krakkaormanna þeirra í heimsókn um daginn og fékk Karítas fallegt leikteppi. Það verður stuð á henni þegar hún hefur vit fyrir því, hehe.

Jæja, þangað til næst!

4 comments:

Hildur J said...

hún er bara krúttlegust :) :) - hlakka til að hitta ykkur eftir 3 vikur vonandi getið þið tekið góða sumarið með ykkur það snjóaði hér í dag.. alveg glatað..

Anonymous said...

Yndislegar myndir og gaman að geta fylgst með ykkur :) hún stækkar og stækkar (og undirhakan líka) hehe ;)
Algjör dúúllllaaaaaa....
kveðja frá okkur mæðgunum.

Sibba Jóns said...

vá kann ekkert á þetta hehe. Mæðgurnar á jótlandinu, Sibba og júlia :) bið að heilsa ykkur, KNUS.

Anonymous said...

Æðislegar myndir.. frábær mynd þar sem hún liggur steinsofandi á maganum á koddanum haha! Hlakka svo til að gefa henni jólaknús :*